Islek 2025 – Samnorrænt þjóðdansa og þjóðlagamót

Islek 2025 – Samnorrænt þjóðdansa og þjóðlagamót

Með þessari færslu viljum við vekja athygli á að þjóðdansafélagið stendur fyrir norrænu þjóðdansa og þjóðlagamót nú í júlí.

Staðsetning er í Úlfarsárdal, nánar tiltekið í Dalskóla, menningarmiðstöð og íþróttahúsi Fram og standa þessi hús við Úlfarsbraut, 113 – Reykjavík . Væri það okkur ánægja ef áhugi væri fyrir að koma og taka þátt í þessu með okkur og njóta dans og tónlistar sem verður þarna á kvöldin. Einnig verður dansað í miðborg Reykjavíkur og Hafnarfiarði.

Þá mun verða dansað í Árbæjarsafni laugardaginn 19. júlí. Dansmót þetta er hluti af samnorrrænu starfi okkar og nefnist ISLEK 2025 og verður mótssetning 15. júlí og lýkur að kvöldi 19. júlí. Ákveðið var að halda mótið á Íslandi, þar sem 50 ár eru síðan fyrsta samnorrræna mótið var haldið á Íslandi, Isleik 1975.

Reynt verður að gera dansmótunum skil með myndum á skjám þá daga sem mótið stendur og vonumst við til að það geti orðið áhugaverð upprifjun. Lokahófi sem fram fer í Skíðaskálanum í Hveradölum, eftir danssýningu í Árbæjarsafni og er miðað við að því ljúki eigi síðar en á miðnætti.

Þátttökugjald í lokahófi er kr. 15000.- og er hægt að tilkynna þátttöku á netfangið islek2025@gmail.com eigi síðar en 30. júní.

Alla dagskrá er hægt að sjá á heimasíðu Þjóðdansafélags Reykjavíkur www thjoddans.is undir ISLEK 2025.

Comments are closed.