Þjóðbúningaleiga
Þjóðdansafélag Reykjavíkur hefur um árabil staðið fyrir leigu á íslenskum þjóðbúningum, til notkunar við ýmis tækifæri eins og brúðkaup eða aðrar athafnir, þar sem henta þykir að nota slíkan þjóðlegan klæðnað.
Þjóðbúningar í safni félagsins eru upphlutir, peysuföt, skautbúningar og kirtlar, ásamt herra- eða bændabúningnum og kjólfötum.
Nánari upplýsingar um pantanir og verð má nálgast með að senda fyrirspurn á thjoddans@gmail.com.
ATH: Búningadeild Þjóðdansafélagsins verður lokuð frá og með 25. júní til 31. ágúst nk.
