Sagnavaka
Sagnavaka er mánaðarlegur viðburður sem haldinn er á Ægir bar, Laugaveg 2, 101 Reykjavík. Á Sagnavöku eru fornkvæðin sungin og vikivaki stiginn. Að dansinum loknum er sungið og kveðið. Á hverri vöku er einn sagnadans tekinn fyrir, texta, nótum og hljóðupptöku er deilt svo fólk geti lært kvæðið fyrir viðburðinn. Gestir eru hvattir til að mæta með skotthúfur.
Þátttaka í Sagnavöku er án gjalds.