Bridgerton Danzleikur
Danzleikur að hætti Bridgerton fjölskyldunnar.
Þjóðdansafélag Reykjavíkur býður þér á danzleik með Bridgerton ívafi, þann 6. apríl.
Dansar tímabilsins verða kenndir alla sunnudaga í sal Þjóðdansafélagsins í mjóddinni til að tryggja að þú getir stigið sporin af öryggi.
Færasti grillari landsins mun matreiða fyrir okkur gómsætt lambalæri að íslenskum sið og hvetjum við alla til að klæðast fatnaði við hæfi tímabilsins, en taka má innblástur úr þáttunum um Bridgerton fjölskylduna.
Aðeins eru 25 miðar í boði á viðburðinn og því er best að panta sem fyrst! Miðaverð er 10.000kr, og er þar innifalið aðgangur að viðburðinum, kvöldmatur og veitingar. Danskennsla á sunnudögum er frí.
Seinasti séns að skrá sig er 15. mars.
Áhugasamir mega senda póst á lilja@puls.is.
Við hlökkum til að dansa með þér!