Hefðardansar frá tíma Jane Austin og Viktoríutímabilinu.

Hefðardansar frá tíma Jane Austin og Viktoríutímabilinu.

Það er margt á döfinni hjá okkur í Þjóðdansafélagi Reykjavíkur í vetur og eitt spennandi verkefni eru sögulegu dansar eða hefðardansar.

Vikulegar dansæfingar hefjast í 29. ágúst hjá félaginu þér að kostnaðarlausu.  Þar förum við yfir nokkra dansa frá fyrri öldum og grunnspor þeirra. Æfingarnar verða á fimmtudögum kl 18.45-19.45.

Hinn 9. nóvember bjóðum þér svo að mæta í samkvæmi í tilefni af fyrstu alþingiskosningunum 1844 sem mörkuðu upphaf sjálfstæðisbaráttu íslendinga.

Við setjum upp grímur

Við dönsum nýjustu dansa þess tíma en einnig mun eldri dansa sem nutu vinsælda áratugina á undan og við höfum séð í Hroki og fordómar og Bridgerton þáttunum.

Til að skapa stemningu mætum við í tískufatnaði fyrri alda

Þú getur endurskapað þekkta íslenska eða erlenda persónu eða jafnvel þjóðsagnaveru frá því fyrir 1845.

Faldbúningar, 19. aldar upphlutur, peysuföt og víkíngaklæði eru velkomin svo og annar sá klæðnaður sem notaður var á fyrri öldum. Hvernig klæddust hinir nýju alþingismenn?

Í boði verða smáréttir, dans, söngur, tónlist og leikir.

Þú þarft ekki að taka þátt í dansinum en getur teflt eina skák eða tvær og notið samverunnar með dansglöðu fólki.

Á danslista má finna m.a. Mars, Hola í veggnum, Nýjan menuett, Byssan, Tusse, , Lancier, Stormurinn, Spænskan vals, Skelli og Schubert vals .

Verð 12000 krónur. Innifalið er námskeið fyrr um daginn og matur. 40 miðar verða í boði að þessu sinni.

Forskráning er hafin!

Sendið nafn, tölvupóstfang og fjölda miða á Lilja Petra Asgeirsdottir, lilja@puls.is og skráið “ 1844 ball” í yfirskrift.

Lokaskráningardagur er 15. október 2024

Endilega fylgið okkur á Facebook til að fá nýjustu fréttir.

Comments are closed.